Grunnnámskeið í Fatabreytingum og endurnýtingu gamalla gæðaefna
Vikuleg mánudagskvöld kl. 18:30 – 21:30 – 6 skipti
Námskeiðið byrjar mánudaginn 5. September 2022
Þátttakendur vinna með fyrirfram ákveðin grunnatriði í fatabreytingum. Þeir mæta með flík sem hæfir hverju atriði og geta mætt með mismunandi flíkur hvert sinn. Þátttakendur hefja vinnu hvers atriðis á stuttu hugmyndaflæði í minni hópum. Þátttakendur geta unnið áfram með flíkina heima ef þeir óska þess.
Þátttakendur taka með sér skæri, saumavél, saumavélanálar og flíkur til að breyta.
Litlir hópar, stuðningur og góður félagsskapur
Hvað er í boði?
- félagsskapur “like-minded” fólks
- dýpkun á möguleikum fatabreytinga
- leiðsögn í saumaskap
- sjálfstæði í fatabreytingum
- sjálfbærni í fatastíl
- hugmyndaflug
- hugsa út fyrir boxið
Innifalið í námskeiðsgjaldi:
- aðstaða, utanumhald og ráðgjöf
- tvinnar, flíkur og efnabútar til að nota við breytingar
- kennslumyndbönd fyrir sniðgerð
- einföld, margnota snið fyrir fatabreytingar
- tölur, skábönd, rennilásar og blúndur
- félagsskapur, gleði og gaman
- uppskeruhátíð i lok námskeiðs
- lokaður hópur á Facebook
Skipulag námskeiðs:
Vika eitt: Breytingar á sídd
- Máltaka og skráning
- Sniðgerð – axlarstykki og keila
- Hugmyndaflæði
- Unnið með sídd
Vika tvö: Breytingar á vídd
- Sniðgerð eftir málum – bolur
- Hugmyndaflæði
- Unnið með vídd
Vika þrjú: Breytingar á emum
- Sniðgerð eftir málum – ermi
- Hugmyndaflæði
- Unnið með ermar
Vika fjögur: Breytingar á hálsmáli
- Sniðgerð – kragi
- Hugmyndaflæði
- Unnið með hálsmál
Vika fimm: Blettir og göt – skreytingar
- Hugmyndaflæði
- Unnið með flíkur með blettum og/eða götum
Vika sex: Slútt
- Unnið með það sem þarf að klára
- Byrjað á nýjum fatabreytingum
- Setið, spjallað og notið
Verð kr. 65.000 með möguleika á skiptingu:
25.000kr. staðfestingarfjald sem greiðist við skráningu
20.000kr í byrjun september
20.000kr í byrjun október
Snemmskráningarbónus:
Bónus 3ja klst. Vinnusmiðja í endurnýtingu, seinnipartinn í ágúst (dagsetning kemur síðar)
Tilboðið stendur til 1. ágúst 2022